Nokia SU 27W - Umhirða og viðhald

background image

Umhirða og viðhald

Í tækinu fer saman frábær hönnun og flókin tækni sem fara þarf gætilega með.
Eftirfarandi leiðbeiningar hjálpa til við að halda tækinu í ábyrgð.

Alla aukahluti og fylgibúnað skal geyma þar sem lítil börn ná ekki til.

Halda skal tækinu þurru. Úrkoma, raki og hvers kyns vökvar geta innihaldið
steinefni sem tæra rafrásirnar. Ef tækið blotnar skal leyfa því að þorna alveg.

Ekki skal nota tækið á rykugum og óhreinum stöðum né geyma það þar.
Færanlegu hlutirnir og rafrænir hlutar þess geta skemmst. Alltaf skal hafa
lokið á pennanum þegar hann er ekki í notkun.

Ekki skal geyma tækið á heitum stað. Hátt hitastig getur dregið úr endingu
rafeindatækja, skemmt rafhlöður og undið eða brætt sum plastefni.

Ekki skal geyma tækið á köldum stað. Þegar tækið hitnar upp að eðlilegu
hitastigi getur raki myndast innan í því og hann getur skemmt rafrásaspjöld.

Ekki skal reyna að opna tækið.

Tækinu skal ekki henda, ekki skal banka í það eða hrista það. Óvarleg meðferð
getur skemmt innri rafrásarspjöld og fíngerðan búnað.

Ekki skal nota sterk efni, leysiefni til hreingerninga eða sterk hreinsiefni til
þess að þrífa tækið.

Ekki skal mála tækið. Málningin getur fest hreyfanlega hluti tækisins og
komið í veg fyrir að þeir vinni rétt.

Allar ofangreindar ábendingar eiga jafnt við tækið, rafhlöðuna, hleðslutækið eða
aðra aukahluti. Ef tæki vinnur ekki rétt skal fara með það til næsta viðurkennda
þjónustuaðila til lagfæringar.