Nokia SU 27W - 5. Upplýsingar um rafhlöðu

background image

5. Upplýsingar um rafhlöðu

Tækið gengur fyrir rafhlöðu sem hægt er að endurhlaða. Hægt er að
hlaða og afhlaða rafhlöðu nokkur hundruð sinnum en að því kemur
að hún gengur úr sér. Aðeins skal endurhlaða rafhlöðuna með
hleðslutækjum sem Nokia hefur samþykkt til notkunar með þessu tæki.

Taka skal hleðslutækið úr sambandi við rafmagnsinnstungu og tækið
þegar það er ekki í notkun. Ekki má hafa fullhlaðna rafhlöðnu í sambandi
við hleðslutæki þar sem ofhleðsla getur stytt líftíma hennar. Fullhlaðin
rafhlaða tapar hleðslunni smátt og smátt ef hún er ekki í notkun.

Aldrei skal nota skemmt hleðslutæki.

Ef rafhlaðan er skilin eftir í miklum hitum eða kuldum, til dæmis í
lokuðum bíl að sumar- eða vetrarlagi, dregur það úr afkastagetu hennar
og endingu. Æskilegast er að rafhlaðan sé alltaf höfð í hita á bilinu
frá 15 °C til 25 °C (frá 59 °F til 77 °F). Tæki með of heitri eða of kaldri
rafhlöðu getur orðið óvirkt um tíma, þó svo að rafhlaðan sé fullhlaðin.
Einkum hefur mikið frost takmarkandi áhrif á rafhlöður.

Ekki má fleygja rafhlöðum í eld þar sem þær geta sprungið. Rafhlöður
geta einnig sprungið ef þær skemmast. Farga skal rafhlöðum í samræmi
við staðbundin lög og reglugerðir. Skila skal þeim í endurvinnslu þegar
mögulegt er. Ekki skal fleygja þeim með heimilisúrgangi.

background image

U m h i r ð a o g v i ð h a l d

17